Lambakjöt
Íslenska lambakjötið hefur ávallt þótt gæðavara. Lömb sem hafa alist upp á fjölbreytilegu gróðurlendi Mývatnsöræfa er einstaklega bragðgott kjöt.
Við tökum allt kjöt heim strax eftir slátrun og látum það hanga og meyrna fyrir frystingu. Við það verður kjötið bragðmeira og er tilbúið til eldunnar strax eftir þiðnun.
Allt lambakjötið verður fitusnyrt, tekið sundur og pakkað skv. óskum kaupenda.
Rif, slög og hæklar eru ekki með í pakkanum.
Pantanir í heila skrokka þurfa að berast fyrir 1. október.
- Heill skrokkur (uppselt)
læri, hryggur, bógur og framhryggjasneiðar
magn í pakka ca. 10 – 14 kg af úrvalskjöti verð pr. kg. 1.550,-
- Skrokkur án læra (uppselt)
hryggur, bógur og framhryggjasneiðar
magn í pakka ca. 6 – 8 kg af úrvalskjöti verð pr. kg. 1.330,-
- Súpukjöt – 1 flokks, sérvalið verð pr. kg. 1.380-
- Bógur verð pr. kg. 1.250-
- Hryggur verð pr. kg. 1.980-
Við vekjum athygli á að bógur er afar bragðmikil og safarík steik þar sem mun meiri fitulög eru í kjötinu. Bógur er minni biti en læri og hentar því vel þar sem færri eru í heimili.
-- oo --
Ef kaupandi hefur sérstakar óskir varðandi vöruna þá vinsamlegast hafið samband við okkur í síma 464-4237 eða með fyrirspurnum hér á heimasíðunni. Afhendingarstaður og greiðslumáti er samningsatriði.
Flutningskostnaður er ekki innifalinn í verðinu.
Þegar pöntunarformið er fyllt út skal gæta þess að skrifa í alla
stjörnumerkta reiti, smella síðan á hnappinn "áfram" og ef engu þarf að breyta þá er smellt á hnappinn "senda". Í
lokin kemur staðfesting um að pöntun hafi verið send. Við svörum síðan öllum pöntunum með
tölvupósti.

